Fara í efni

Sveitarstjórn

178. fundur 12. ágúst 2014 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Stefán Ármannsson aðalmaður, Hjördís Stefánsdóttir ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Daníel Ottesen aðalmaður og Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður.

Kristjana Helga Ólafsdóttir  fjármálastjóri, ritaði fundargerð.

Björgvin Helgason oddviti, setti fundinn og bauð fólk velkomið til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.


Oddviti leitaði afbrigða að taka inn á dagskrá mál nr 1408004 og verður það 7. liður á dagskrá. Samþykkt samhljóða 7-0.

 

1.   1407001F - Sveitarstjórn - 177


Fundargerðin framlögð.


2.   1407003F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 42

AH fór yfir fundargerðina. AH upplýsti sveitarstjórn um stöðu mála varðandi
lið nr 2, framkvæmdir við Glym í Botnsdal. Varðandi lið nr 4. fór AH yfir
aðalskipulagsbreytingu á stefnumörkun fyrir iðnaðarsvæði og áréttaði hvað
breytingin felur í sér: "Ekki er heimilt að hefja nýja starfsemi sem hefur í för
með sér losun flúors á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga og stefnt skal að
því að draga úr losun flúors eins og kostur er. Ekki er heimilt að hefja nýja
starfsemi sem hefur í för með sér losun brennisteinstvíoxíðs á
iðnaðarsvæðinu á Grundartanga og stefnt skal að því að draga úr losun
brennisteinstvíoxíðs eins og kostur er. "
AH fór yfir lið nr 5 og 6 og greindi frá áherslubreytingu hjá núverandi USN
nefnd varðandi frekari takmarkanir á þau efni sem leyfilegt verður að losa
frá iðnaðarstarfsemi.
Fundargerðin framlögð.


2.1.  1406022 - Kaldavatnsveita - Hlíðarbær - Saurbær


USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veita framkvæmdaleyfi að
undangenginni grenndarkynningu sbr. 44. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 og/eða að fyrir liggi skriflegt samþykki landeiganda
framkvæmdarsvæðis á kynningargögnum. Skipulagsfulltrúa falið að
vinna málið áfram.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.2.  1403029 - Aðalskipulagsbreyting á stefnumörkun iðnaðarsvæða.


USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að tillaga breytingar
stefnumörkunar aðalskipulags um iðnaðarsvæði verði auglýst sbr. 31.
gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.3.  1311026 - Breyting aðalskipulags iðnaðar- og athafnasvæðis á
Grundartanga


USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að tillaga breytingar
aðalskipulags iðnaðar- og athafnasvæðis við Grundartanga ásamt
umhverfisskýrslu verði auglýst sbr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.4.  1406020 - Breyting deiliskipulags austursvæðis við Grundartanga

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að tillaga deiliskipulags
austursvæðis verði auglýst samhliða auglýsingu breytingar
aðalskipulags landnotkunar við Grundartanga sbr. 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið
áfram.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

2.5.  1310001 - Fjárrekstur í gegnum Hafnarsel.

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmd verði
grenndarkynnt fyrir Hafnarseli og landeigendum í samræmi við 44. gr.
skipulagslaga nr. 123/3010.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.6.  1406038 - Litli Sandur - Niðurrif - Geymslur


USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila niðurrif geymslu sem
er 278 fm en afreiðslu frestað varðandi bogabragga. Byggingarfulltrúa
og formanni nefndarinnar falið að vinna málið áfram.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.7.  1407018 - Æðarholt - Ásgarður - Sameining lóða


USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila sameiningu lóða.
Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


3.   1407029 - 19. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.


BH fór yfir fundargerðina.
Fundargerðin framlögð.

4.   1407028 - Ráðning sveitarstjóra.


Ráðningarsamningur við Skúla Þórðarson, lagður fram.


Lagður fram ráðningarsamningur við Skúla Þórðarson um starf
sveitarstjóra. Ráðningarsamningurinn gildir frá 15. ágúst 2014 til 1. júlí
2018.
Oddviti leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagðan
ráðningarsamning.
Samþykkt samhljóða 7-0.


5.   1406016 - Endurgreiðsla til sveitarfélaga vegna refaveiða.


Erindi frá Umhverfisstofnun, dagsett 10. júlí 2014. Samningsdrög um
refaveiðar og yfirlit yfir endurgreiðsluhlutföll sveitarfélaga.


Oddviti leggur til að erindinu sé vísað til landbúnaðarnefndar.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


6.   1408001 - Ósk um fjárveitingu til kaupa á Ipödum vegna aukins
nemendafjölda í Heiðarskóla.


Erindi frá skólastjóra Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar, dagsett 7.
ágúst 2014.


Oddviti leggur til að erindinu sé vísað til fræðslu- og skólanefndar.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

7.   1408004 - Stæði fyrir stóra bíla.


Erindi frá íbúa á Hagamel 7, dagsett 17. júlí 2014.


Sveitarstjóra og oddvita er falið að ræða við bréfritara.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


8.   1407032 - Boðun XXVIII. landsþings Sambands íslenskra
sveitarfélaga.


Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 4. júlí 2014.

Fundarboð á Landsþing Sambands Íslenskra sveitarfélaga sem haldið
verður á Akureyri 24. - 26. september 2014.


Fulltrúar Hvalfjarðarsveitar verða Björgvin Helgason oddviti og Skúli
Þórðarson sveitarstjóri.
Erindið framlagt.


9.   1407027 - 41. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.


Fundargerðin framlögð.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:36 .

Efni síðunnar