Fara í efni

Sveitarstjórn

177. fundur 08. júlí 2014 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður og Daníel Ottesen aðalmaður.

Kristjana Helga Ólafsdóttir  fjármálastjóri, ritaði fundargerð.


Björgvin Helgason oddviti, setti fundinn og bauð fólk velkomið til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

 

1.   1406003F - Sveitarstjórn - 176


Fundargerðin framlögð.

2.   1406005F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 41


AH fór yfir fundargerðina. 2. liður kynning á drögum að umhverfisáætlun
kerfisáætlunar. AH fór yfir þrjú megin atriði sem nefndin benti á í
samvinnu við lögmann. Þessi þrjú atriði eru loftlínu á láglendi, fyrning eldri
lína og frágangur og að ekki sé fjallað með skýrari hætti aðrar leiðir en
loftlínur. AH fór yfir aðalskipulagsbreytingu á stefnumörkun
iðnaðarsvæðis.
Varðandi 6. lið. AH fór yfir að teknir yrðu saman minnispunktar frá
kynningarfundi. Varðandi 12 lið. Lagt er til við sveitarstjórn að samþykkja
erindið en AH bendir á að Örnefnanefnd ber að fá slíkt til umsagnar.


2.1.  1405027 - Kynning á drögum að umhverfisskýrslu
kerfisáætlunar 2014-2023.


Umsögn Hvalfjarðarsveitar lögð fram.


2.2.  1403029 - Aðalskipulagsbreyting á stefnumörkun iðnaðarsvæða.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.3.  1401020 - Deiliskipulag fyrir olíubirgðastöð á Litlasandi


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.4.  1406035 - Breyting deiliskipulags Eyrarskógar í landi Eyrar


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.5.  1403025 - Selá - Litla Botnsland 186295 - Viðbygging


Byggingarleyfi fyrir 15 m2 viðbyggingu á frístundahúsi í landi LitlaBotns var grenndarkynnt fyrir landeigendum sbr. 44.gr. skipulagslaga
nr. 123/2010 frá 19. maí til 19. júní 2014. Engar athugasemdir bárust.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.6.  1406011 - Kúludalsá 4b - Lambalækur - Nafnabreyting


Sveitarstjórn samþykkir nafnabreytinguna fyrir sitt leyti en bendir
umsækjanda á að senda erindið til Örnefnanefndar sem veitir leyfið
samanber 5. gr. laga nr. 35/1953.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


3.   1407008 - 109. fundur fræðslu- og skólanefndar.


Viðhorfskönnun foreldra, áður send sveitarstjórn og liggur frammi.


Fundargerðin framlögð.


4.   1407013 - 42. fundur fjölskyldunefnda.


Fundargerðin verður send rafrænt.


Fundargerðin framlögð.

5.   1407007 - Beiðni um aðkomu Hvalfjarðarsveit við að tryggja aðgang að vatni í Herdísarholti og nágrenni.


Erindi frá Draupnir lögmannsþjónustu, dagsett 30. júní 2014.


Oddviti fór yfir erindið. Tillaga frá oddvita að Stefáni Ármannssyni og
oddvita verði falið að ræða við hlutaðeigandi varðandi erindið. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0.


6.   1404002 - Lóð heimavistar Fjölbrautaskóla Vesturlands, Vogabraut 4 á Akranesi.


Boð á fund 11. ágúst um lóð


Oddviti fór yfir erindið. Tillaga er um að oddviti sæki fund FVA. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0.


7.   1406006 - Kosningar skv. VI kafla 40.gr. samþykktar um stjórn og
fundarsköp Hvalfjarðarsveitar nr 554 frá 29. maí 2013


Stjórn Snorrastofu, aðalmaður og varamaður, var frestað á 175. fundi.

Oddviti fór yfir erindið. Tillaga er um að Brynja Þorbjörnsdóttir verði fulltrúi
sveitarfélaganna í stjórn Snorrastofu. Tillagan samþykkt 7-0.

8.   1406023 - Sumarfrí sveitarstjórnar og lokun skrifstofu.


Erindi frá oddvita.


Tillaga oddvita er að sumarleyfi sveitarstjórnar verði frá 22. júlí til og með
12. ágúst. Þar með falli fundir sveitarstjórnar niður þann 22. júlí og 12.
ágúst. Ef þörf krefur verður boðað til aukafundar. Einnig er lagt til að
skrifstofa Hvalfjarðarsveitar verði lokuð frá 28. júlí til og með 8. ágúst.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


9.   1407001 - Rekstraryfirlit janúar - maí 2014.


Erindi frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.

Fjármálastjóri fór yfir rekstraryfirlitið. Áætlun fyrir fyrstu fimm mánuði
ársins gerði ráð fyrir jákvæðum rekstrarafgangi upp á 2,9 millj kr.
Raunstaðan er neikvæður rekstrarafgangur upp á 9,5 millj kr.
Meðfylgjandi rekstraryfirlitinu er greinargerð frá skólastjóra varðandi
fjárhagsstöðu fræðslumála. SÁ tók til máls og spurði um
félagsmáladeildina og einnig um stöðuna og hvort skoða þurfi sérstaka liði
nánar. AH tók til máls og spurðist fyrir um greinargerð skólastjóra og hvort
einhverjir sérstakir liðir væru sem sveitarstjórn þyrfti að skoða betur. SÁ
tók til máls og spurði um stöðuna á fjármunum í ljósleiðaraverkefninu.
Fjármálastjóri svaraði fram komnum fyrirspurnum.
Erindið framlagt.


10.   1407003 - Viðaukar við fjárhagsáætlanir.


Frá innanríkisráðuneytinu, dagsett 18. júní 2014.


Erindið framlagt.


11.   1407004 - Arðgreiðsla fyrir rekstrarárið 2013.


Frá Eignarhaldsfélaginu Speli, dagsett 20. júní 2014.


Erindið framlagt.


12.   1309031 - Varðandi ráðningu í starf framkvæmdastjóra Höfða.


Bréf frá Hvalfjarðarsveit sent til umboðsmann Alþingis, dagsett 25. júní
2014.

Erindið framlagt.

13.   1404027 - Fjallskilasamþykkt - samþykkt drög.


Tillaga að nýrri fjallskilasamþykkt samþykkt frá Skorradalshreppi.


Erindið framlagt.

14.   1406008 - Aðalfundarboð Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar sf.


Aðalfundargerð Vatnsveitufélagsins.


Fundargerðin framlögð.

15.   1407002 - 31.-35. stjórnarfundir Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar sf.


Sveitarstjórn beinir því til stjórnar Vatnsveitufélagsins að fundargerðir
berist jafnóðum til sveitarfélagsins.
Fundargerðir framlagðar.


16.   1407009 - 122. fundur Faxaflóahafna.


Ársskýrsla 2013, liggur frammi.


Fundargerðin framlögð.


17.   1407012 - 817. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Fundargerðin framlögð.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:46 .

Efni síðunnar