Fara í efni

Sveitarstjórn

165. fundur 11. febrúar 2014 kl. 16:25 - 18:25

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður og Björgvin Helgason 1. varamaður.


Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.
Oddviti leitaði afbrigða að taka lið 11, efnahagsyfirlit fyrst á dagskrá. Samþykkt.
BH gerir athugasemd við fundarboðið og óskar eftir að fjalla um lið 6 og 8 samtímis.
Tillagan samþykkt samhljóða
Að auki sat fundinn fjármálastjóri undir lið 11
og sveitarstjóri sem ritaði fundargerð

1.   1401002F - Sveitarstjórn - 163


AH ræddi lið 4 og 7 ræddi lið 6 og óljósa bókun á tillögu í lið 6. SSJ
svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF ræddi lið 6 og lagði fram bókun;
Í lið 6 mál 1401025. Afsláttur á fasteignagjöldum, kemur fram að tillaga
SSJ sé samþykkt. Sú bókun í fundargerð er ekki nægjanlega skýr.
Tillagan var að að verða ekki við ósk bréfritara. Áréttast það hér með.
SSJ, SAF, ÁH og HHJ.
Fundargerðin framlögð


2.   1402001F - Sveitarstjórn - 164


Fundargerðin framlögð


3.   1402004 - 40. fundur fjölskyldunefndar.


BH víkur af fundi vegna tengsla við umsækjanda.
LJ fór ræddi minnisblað sem sent var til sveitarstjórnar vegna ráðningar í
stöðu félagsmálastjóra og lagði fram eftirfarandi tillögu;
Umsóknarfrestur um starf félagsmálastjóra rann út 31. janúar. Um starfið
sóttu 26 aðilar. Búið er að fara yfir umsóknirnar og taka viðtöl við fimm
umsækjendur. Að afloknum viðtölunum er það einróma tillaga hópsins
sem fór yfir umsóknirnar og tók viðtölin að leggja til við sveitarstjórn að
ráða Hildi Jakobínu Gísladóttur í starfið.
HHJ ræddi fyrsta lið og lagði til að samþykkja 4% vísitöluhækkun á 
framfærslu. Ræddi lið tvö. SSJ ræddi fram komna tillögu um ráðningu í
starf félagsmálastjóra. AH ræddi erindið og samþykkir að afgreiða erindið
á þessum fundi. SAF ræddi erindið og er tilbúin til að afgreiða fram komna
tillögu. Tillagan um ráðningu Hildar Jakobínu Gísladóttur í starf
félagsmálastjóra samþykkt samhljóða 6-0. BH tekur aftur þátt í fundinum.
SSJ lagði til að samþykkja lið eitt. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
SSJ lagði til að samþykkja tillöguna í lið tvö og fela félagsmálastjóra að
sjá um framkvæmd tillögunnar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
Fundargerðin framlögð


4.   1402013 - 106. fundur fræðslu- og skólanefndar.


ÁH fór yfir fundargerðina. LJ ræddi lið 6 önnur mál og greindi frá fundi
með skólastjóra þar sem farið var yfir lausn á stöðu sviðsstjóra. LJ svaraði
fram komnum fyrirspurnum. SÁ lagði til að að bæta ÁH í viðræður
varðandi mál sviðsstjóra. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Fundargerðin
framlögð.


5.   1402009 - Afskrift á þing- og sveitarsjóðsgjöldum.


Erindi frá Sýslumanninum í Borgarnesi, dagsett 24. janúar 2014.


LJ fór yfir erindið og lagði til að samþykkja afskriftirnar þar sem innheimta
hefur reynst árangurslaus og gjaldandi fluttur úr landi. Upphæð kr.
677.271 auk áfallins kostnaðar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


6.   1402017 - Tillaga um fyrirkomulag ljósleiðaratenginga í íbúðarhús.


Erindi frá L og H lista, varðandi að endurskoða ákvörðun frá 23. apríl
2013, um fyrirkomulag ljósleiðaratenginga í íbúðarhús.


SSJ fór yfir lið 6 og lið 8 varðandi endurskoðun á ákvörðun um
fyrirkomulag ljósleiðaratenginga í íbúðarhús. SAF fór yfir erindið og
tillögurnar.


Tillaga L og H lista
Sveitarstjórn samþykkir að hefja nauðsynlega vinnu til að endurskoða
ákvörðun sína frá 23. apríl síðastliðnum um fyrirkomulag
ljósleiðaratenginga í íbúðarhús í sveitarfélaginu þar sem ákveðið var að
miða skuli miða við fasta búsetu og lögheimili þann 23. apríl 2013.
Sveitarstjóra í samvinnu við verkefnisstjóra ljósleiðaraverkefnisins er falið
að láta vinna kostnaðaráætlun og drög að viðauka að fjárhagsáætlun til
þess að sveitarstjórn geti staðfest ákvörðun um breytingu á þessum
reglum. Þar skal miðað við að tengja skuli íbúðarhús, sem og íbúðarhús
sem eru í byggingu og fengið hafa úthlutað byggingarleyfi fyrir verklok.
Áfram verði þess krafist að viðkomandi veiti leyfi sitt um lagningu
ljósleiðarans um land sitt og skuldbindi sig til tveggja ára áskriftar að
ljósleiðaranum.
Ennfremur er sveitarstjóra falið að vinna drög að gjaldskrá sem tæki gildi
við verklok og leggja fyrir sveitarstjórn.
AH ræddi fram komnar tillögur og dregur tillögu sína frá síðasta fundi til 
baka.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


7.   1402010 - Reiðvegur við Miðgarðstjörn.


Erindi frá reiðveganefnd Dreyra, dagsett 1. febrúar 2014.


SSJ bar fram tillögu varðandi hæfi SÁ til þess að taka þátt í afgreiðslu
málsins. SAF óskaði eftir upplýsingum varðandi hæfi SÁ. SÁ fór yfir
aðkomu sína en hann er formaður hestamannafélagsins Dreyra. SÁ er
kjörinn hæfur til þess að fjalla um málið með 6 atkvæðum. SAF telur SÁ
vanhæfan.
LJ fór yfir erindið og lagði til að fela byggingarfulltrúa að fara yfir málið
með fulltrúum Dreyra og skoða mögulega skiptingu verksins og leggja
nánari útfærslu fyrir næsta fund sveitarstjórnar. SÁ ræddi erindið og
reiðvegagerð á svæðinu. SAF styður fram komna tillögu og ræddi
fyrirkomulag varðandi uppbyggingu reiðvega.


8.   1402012 - Ljósleiðari.


Undirrituð leggja til að miða skuli við ljósleiðaratengingar í
Hvalfjaðrarsveita að lögbýlum, íbúðarhúsum og þar sem gefin hafa verið
út byggingarleyfi 23. apríl 2013. Erindi frá Arnheiði.

Sjá afgreiðslu í 6 lið fundargerðarinnar.


9.   1402014 - Fasteignagjöld á eigninni Leynisvegi 1.


Erindi frá Faxaflóahöfnum, dagsett 5. febrúar 2014.


SSJ lagði til að fela fjármálastjóra og byggingarfulltrúa að yfirfara
fasteignamatið og álagningu gjalda á umræddri eign.


10.   1402015 - Skil á starfsleyfi Sementsverksmiðjunnar ehf.


Erindi frá Umhverfisstofnun ( til Sementsverksmiðjunnar ehf.). Þegar sent
skipulags- og byggingarfulltrúum og form. USN nefndar.


SSJ lagði til að fela byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa að kanna hvort
frágangur námu sé fullnægjandi með tilliti til umhverfismats og starfsleyfis
og senda þær niðurstöður til USN nefndar. Málinu er þegar vísað til USN
nefndar. BH lagði jafnfram til að vísa umhverfismatskýrslunni til USN
nefndar til skoðunar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


11.   1402007 - Rekstraryfirlit janúar - desember 2013.


Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.


KHÓ fór yfir rekstraryfirlitið og óskar eftir að sveitarstjórn sendi
ábendingar og fyrirspurnir til sín varðandi yfirlitið. SSJ ræddi
rekstraryfirlitið. Erindið er framlagt.


12.   1309014 - Erindi frá innanríkisráðuneytinu varðandi kröfu frá Böðvari Jónssyni að fella út ákvörðun sveitarstjórnar varðandi
ljósleiðaratengingu Íbúðarhúsa við lögheimili íbúa.


Úrskurður vegna stjórnsýslukæru, frá innanríkisráðuneytinu, dagsett 5.
febrúar 2014.


Stjórnsýslukæru varðandi fyrirkomulag ljósleiðaratengingar í
sveitarfélaginu er vísað frá af Innanríkisráðuneytinu. Erindið framlagt


13.   1402006 - Landsamband 60+ ályktar um útvistun á rekstri
hjúkrunarheimila til einkaaðila.


Erindi frá Samfylkingunni, dagsett 27. janúar 2014.


Erindið framlagt


14.   1402008 - Stjórn Stéttarfélags Vesturlands skorar á sveitarstjórnirnar á starfssvæði sínu að styðja við samstarf aðila vinnumarkaðarins um átak gegn svartri atvinnustarfsemi.


Erindi frá stjórn Stéttarfélags Vesturlands, dagsett 30. janúar 2014.


Erindið framlagt


15.   1401001 - Faghópur til starfa með menningarfulltrúa.


Bréf frá Akraneskaupstað til SSV.


Erindið framlagt


16.   1401040 - Fyrirspurn vegna framkvæmda við vegamót Melahverfis og Þjóðvegar 1.


Svör sveitarstjóra við fyrirspurnum Arnheiðar Hjörleifsdóttir.

AH fór yfir erindið og svörin. Þakkaði framlögð svör. Erindið framlagt


17.   1402019 - Styrktarsjóður EBÍ 2014.


Erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, dagsett 4. febrúar
2014.


ÁH ræddi erindið og lagði til að Hvalfjarðarsveit sendi inn umsókn. Benti á
að rétt væri að USN nefnd, fræðslu- og skólanefnd og atvinnu- og
menningarmálanefnd sendi inn umsókn. Erindið framlagt


18.   1402011 - 812. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Fundargerðin liggur frammi og hægt að nálgast hér:
http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdirstjornar/searchmeetings.aspx

Fundargerðin framlögð


19.   1402016 - 15. fundargerð nefndar um nýja fjallskilasamþykkt.


Fundargerðin framlögð


20.   1402018 - 117. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.


Fundargerðin framlögð

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:00 .

Efni síðunnar