Fara í efni

Hvalfjarðardagar 2019

Hvalfjarðardagar 2019 

 

 

 

 

Hvalfjarðardagar 2019 dagskrá: 

Föstudagur 21. júní.

  • Ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga.

    • Þema í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðadaga 2019 verður töfrar Álfholtsskógar. Myndin verður að vera tekin í júnímánuði 2019.
    • Senda skal myndir á netfangið hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is.

  • Skreyta heimreiðar.

    • Skreyta heimreiðar, póstkassa eða götur, verðlaun veitt fyrir flottustu skreytinguna.
  • Kl. 12:00-20:00 Sundlaugin að Hlöðum opin.

  • Kl. 12:00-17:00 Hernámssetrið að Hlöðum opið.

  • Kl. 18:00-22:00 Hótel Laxárbakki.

    • Laxárbakki býður heim, gestum boðið að skoða íbúðirnar og aðstöðuna.Hamingjustund milli kl. 18:00-19:00. Grillveisla og drykkur kr. 2.500. Borðapantanir í síma 551- 2783.

  Laugardagur 22. júní.

  • 10:00-20:00 Sundlaugin að Hlöðum opin.

    • Glaðningur fyrir börnin.
  • 10:00-17:00 Hernámssetrið að Hlöðum opið.

    • Boðið verður upp á að taka myndir af sér með hermanni í fullum herklæðum og hertrukki frá árinu 1945 á milli kl. 13:00–16:00.
  • Kl. 11:00-13:00 Hótel Glymur býður upp á dögurð (bröns).

    • Kaffi, te, safi, brauð og kex, bláberjajógurt, beikon, egg, eggjahræra, brauðréttur, reyktur lax með hunangssósu, skinka, lifrarpate, kjúklingur, kartöflubátar, rjómasveppasósa, súkkulaðibitakaka. Verð kr. 2.800.
  • Kl. 12:00 Tónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ.

    • Ásta Marý Stefánsdóttir sópransöngkona og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari halda ljóðatónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Á efnisskrá tónleikanna eru norræn ljóð úr ýmsum áttum. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en listamenn þiggja frjáls framlög með þökkum.
  • 12:00-16:00 Líf í Lundi í Álfholtsskógi.

    • Axlarhringur hlaupinn kl. 12:00 og dregið verður úr þátttakendum og verðlaun veitt.
    • Fjölskylduratleikur kl. 13:00.
    • Ganga um svæðið með leiðsögn.
    • Plöntugreining - dregið verður úr réttum lausnum og verðlaun veitt.
    • Víkingabúðir, eldsmiðir, bogsmiðir, sölubás. Gestum býðst að prófa bogfimi, axarkast og tálgun.
    • Grillað verður teinabrauð og sykurpúðar, ketilkaffi og kakó. Kostar 300 kr. eða frjáls framlög í skógarsjóð.
  • Kl. 13:00-17:00 Hótel Glymur - Kaffihlaðborð.

    • Kaffi, te, brauðréttir, rjómaterta, súkkulaðiterta, marengsbomba, randalín, kleinur.Verð fyrir 11 ára og eldri 2.800 kr. 7-10 ára 1.000 kr. og frítt fyrir 6 ára og yngri. >
  • Kl. 13:00-17:00 Þórisstaðir.

    • Sveitamarkaður á Þórisstöðum, fjölbreytt vöruúrval, ath. ekki allir með posa.
    • Candy floss og krapís.
    • Hoppukastalar.
  • Kl. 14:00 - 17:00 Melahverfi við Stjórnsýsluhús.

    • Frumsýning á járnhænunni Belindu eftir Önnu G. Torfadóttur.
    • Traktora- og fornbílasýning.
    • Húsdýragarður.
    • Teymt verður undir börnum.
    • Froðurennibraut Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
    • Grillveisla kl. 15:00, pylsur í boði SS og kókómjólk í boði MS meðan birgðir endast.
    • Hoppukastalar.
    • Götu- og sveitabæjagrill. Við hvetjum nágranna í þéttbýli og dreifbýli til að grilla saman og komast í réttu stemninguna fyrir rjóðursönginn.
  • Kl. 21:00 Rjóðursöngur í Sparirjóðri í Álfholtsskógi.

    • Orri Sveinn trúbador stjórnar fjöldasöng. Fjölmennum og tökum góða skapið með.

Sunnudagur 23. júní.

  •  Kl. 10:00-20:00 Sundlaugin að Hlöðum opin.

  • Kl. 12:00-17:00 Hernámssetrið að Hlöðum opið.

  • Kl. 16:00 Tónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ.

    •  Ragnheiður Ólafsdóttir og hljómsveit. Leikin verða þjóðlög frá ýmsum löndum ásamt kveðskap og frumsömdu efni. Meðleikarar Ragnheiðar eru Hermann Stefánsson, gítarleikari og Snorri Skúlason, kontrabassi.

 Hvalfjarðardagar augl